Karl 4. Frakkakonungur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Karl 4. (18./19. júní 1294 – 1. febrúar 1328), oft nefndur Karl fagri, var konungur Frakklands og Navarra (sem Karl 1.) og greifi af Champagne frá 1322 til dauðadags. Hann var síðasti konungur Frakklands af Kapet-ætt.
Karl var þriðji og yngsti sonur Filippusar 4. Frakkakonungs og Jóhönnu 1. af Navarra. Hann tók við ríkjum þegar Filippus 5. bróðir hans lést í ársbyrjun 1322. Ólíkt honum og raunar einnig föður þeirra er hann álitinn hafa verið fremur íhaldssamur og lítið gefinn fyrir að stuðla að framförum. Hann var þó ágætlega menntaður.