Katalin Novák
Forseti Ungverjalands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Katalin Éva Novák[1] (f. 6. september 1977) er ungversk stjórnmálakona og fyrrverandi forseti Ungverjalands. Hún var kjörin árið 2022 og er bæði fyrsti kvenforseti landsins og yngsti forseti í sögu Ungverjalands. Novák er meðlimur í íhaldsflokknum Fidesz og sat á ungverska þinginu frá 2018 til 2022. Hún var jafnframt fjölskyldumálaráðherra í fjórðu ríkisstjórn Viktors Orbán frá 2020 til 2021.
Staðreyndir strax Forseti Ungverjalands, Forsætisráðherra ...
Katalin Novák | |
---|---|
Forseti Ungverjalands | |
Í embætti 10. maí 2022 – 26. febrúar 2024 | |
Forsætisráðherra | Viktor Orbán |
Forveri | János Áder |
Eftirmaður | László Kövér (starfandi) |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 6. september 1977 (1977-09-06) (46 ára) Szeged, Ungverjalandi |
Stjórnmálaflokkur | Fidesz |
Maki | István Attila Veres |
Börn | 3 |
Háskóli | Corvinus-háskólinn í Búdapest (MSc) Háskólinn í Szeged (J.D.) |
Starf | Stjórnmálamaður |
Loka
Novák sagði af sér sem forseti í febrúar 2024 vegna gagnrýni í kjölfar þess að hún hafði náðað mann sem hafði verið dæmdur fyrir að hylma yfir barnaníð.