![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e6/Yacht_jib.svg/langis-640px-Yacht_jib.svg.png&w=640&q=50)
Klýfir
From Wikipedia, the free encyclopedia
Klýfir eða brandaukasegl er þríhyrnt framsegl (stagsegl) sem fest er á stag sem nær frá bugspjóti að framsiglu framan við fokkuna sem er á stagi sem nær frá stefni að framsiglu. Klýfirnir geta verið tveir og heita þá ytri- og innri-klýfir. Á sumum skipum er lítið þríhyrnt segl, jagar, framan við klýfinn festur á stag sem nær frá enda bugspjóts að húni framsiglu.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e6/Yacht_jib.svg/640px-Yacht_jib.svg.png)