Krátrokk
From Wikipedia, the free encyclopedia
Krátrokk (e. Krautrock) er heiti yfir þýska rokktónlist frá seinni hluta sjöunda áratugarins og byrjun þess áttunda. Það voru breskir tónlistarblaðamenn sem nefndu þessa byltingu krautrock en hljómsveitir sem eru kenndar við þetta nafn eru allar mjög ólíkar og því enginn afgerandi stíll á þessari stefnu. Krátrokk hafði mikil áhrif á tónlistarheiminn og út frá þessari einkennilegu tónlistarstefnu urðu til nýjar stefnur á borð við raftónlist, teknó, hipp hopp og ambient tónlist.[1] Dæmi um þekktar krátrokk hljómsveitir eru Can, Neu! og Kraftwerk.
Staðreyndir strax Uppruni, Hljóðfæri ...
Krátrokk | |
---|---|
Uppruni | Seinni hluti sjöunda áratugarins í Vestur-Þýskalandi |
Hljóðfæri | Gítar, bassi, trommur, hljóðgervill |
Vinsældir | Mest neðanjarðar en sumar sveitir öðluðust vinsældir |
Tengdar stefnur | |
Sýrurokk – Framsækið rokk - Tilraunakennd tónlist - Raftónlist |
Loka