Kíl
þýsk hafnarborg og höfuðborg sambandslandsins Slésvíkur-Holtsetalands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Kíl (þýska: Kiel) er hafnarborg í Norður-Þýskalandi í Kílarflóa við strönd Eystrasalts og er höfuðborg sambandslandsins Slésvíkur-Holtsetalands. Íbúafjöldi er 247 þúsund (2019). Borgin hefur verið aðalhafnarborg og skipasmíðastöð Þýskalands frá miðri 19. öld. Hún er við eystri enda Kílarskurðarins sem tengir Eystrasaltið við Norðursjó. Borgin er þekkt fyrir Kílarvikuna (Kieler Woche) sem er stærsti siglingaviðburður heims.
Staðreyndir strax Kiel (þýska), Land ...
Kíl
Kiel (þýska) | |
---|---|
Hnit: 54°19′24″N 10°08′22″A | |
Land | Þýskaland |
Sambandsland | Slésvík-Holtsetaland |
Stjórnarfar | |
• Bæjarstjóri | Ulf Kämpfer |
Flatarmál | |
• Borg | 118,6 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 5 m |
Mannfjöldi (2022) | |
• Borg | 247.717 |
• Þéttleiki | 2.100/km2 |
Tímabelti | UTC+01:00 (CET) |
• Sumartími | UTC+02:00 (CEST) |
Póstnúmer | 24103–24159 |
Vefsíða | kiel |
Loka