Kíribatí
From Wikipedia, the free encyclopedia
Kíribatí er eyríki í Suður-Kyrrahafi. Því tilheyra um 32 baugeyjar og ein kóraleyja sem eru dreifðar um 3.500.000 ferkílómetra svæði nálægt miðbaug, rétt við daglínu. Kíribatí (borið fram /kiribas/) er gilbertísk umritun á „Gilberts“, en eyjarnar voru áður hluti Gilbertseyja. Höfuðborg Kíribatí, Suður-Tarawa, stendur á nokkrum hólmum í Tarawa-eyjaklasanum sem eru tengdar með vegbrúm. Kíribatí er eitt af fátækustu ríkjum heims. Helstu útflutningsvörur eyjanna eru þurrkaður kókoshnetukjarni og fiskur.
Republic of Kiribati | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Te Mauri, Te Raoi ao Te Tabomoa | |
Þjóðsöngur: Teirake Kaini Kiribati | |
Höfuðborg | Suður-Tarawa |
Opinbert tungumál | gilbertíska og enska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | Taneti Maamau |
Sjálfstæði | |
• frá Bretlandi | 12. júlí 1979 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
170. sæti 811 km² 0 |
Mannfjöldi • Samtals (2015) • Þéttleiki byggðar |
179. sæti 110.136 152/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2011 |
• Samtals | 0,599 millj. dala (180. sæti) |
• Á mann | 5.721 dalir (112. sæti) |
VÞL (2014) | 0.590 (137. sæti) |
Gjaldmiðill | ástralskur dalur (AUD) |
Tímabelti | UTC+12 +13 +14 |
Þjóðarlén | .ki |
Landsnúmer | +686 |
Kíribatí var byggð Míkrónesum á bilinu frá 3000 f.Kr. til 1300 e.Kr. Eyjarnar voru ekki einangraðar og urðu fyrir menningaráhrifum frá Pólýnesíu og Melanesíu. Fyrstu Evrópumennirnir komu til eyjanna á 16. öld og þær voru undir yfirráðum Spánverja frá 1525 til 1885. Í byrjun 19. aldar komu hvalveiðimenn til eyjanna og fyrstu bresku landnemarnir settust þar að 1837. Árið 1892 samþykktu íbúar eyjanna að gera þær að bresku verndarsvæði. Árið 1916 urðu þær hluti af nýlendunni Gilberts- og Elliseyjar. Japanir lögðu eyjarnar undir sig í síðari heimsstyrjöld og orrustan um Tarawa var ein blóðugasta orrusta Kyrrahafsstríðsins milli Bandaríkjanna og Japan. Kíribatí fékk sérstaka heimastjórn árið 1975. Árið 1978 urðu Elliseyjar sjálfstæðar sem Túvalú og árið eftir fengu Gilbertseyjar sjálfstæði sem Kíribatí. Það nafn var valið fremur en Gilbertseyjar þar sem ríkið náði yfir Banaba, Línueyjar og Fönixeyjar sem aldrei voru hluti Gilbertseyja. Stjórn eyjanna ákvað 1995 að flytja daglínuna langt austur svo Línueyjar væru sömu megin við hana og hinar eyjarnar. Kíribatí varð þannig fyrst landa til að heilsa nýju árþúsundi, sem dró marga ferðamenn til eyjanna.
Kíribatí er eitt af þeim ríkjum heims sem eru í mestri hættu vegna hækkandi sjávarstöðu af völdum hnattrænnar hlýnunar. Forseti eyjanna hefur talað um að íbúar eyjanna muni neyðast til að flytja annað þegar fram líða stundir.