Lionel Jospin
Franskur stjórnmálamaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
Lionel Jospin (f. 12. júlí 1937) er franskur stjórnmálamaður sem var forsætisráðherra Frakklands frá 1997 til 2002. Jospin var frambjóðandi franska Sósíalistaflokksins í forsetakosningunum árin 1995 og 2002. Í fyrri kosningunum tapaði hann naumlega fyrir Jacques Chirac í seinni umferðinni. Í kosningunum 2002 komst hann öllum að óvörum ekki í aðra umferð kosninganna þar sem hann fékk færri atkvæði en bæði Chirac og öfgahægrimaðurinn Jean-Marie Le Pen í fyrri umferðinni. Eftir þennan auðmýkjandi ósigur dró Jospin sig alfarið úr frönskum stjórnmálum.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Frakklands, Forseti ...
Lionel Jospin | |
---|---|
Forsætisráðherra Frakklands | |
Í embætti 2. júní 1997 – 6. maí 2002 | |
Forseti | Jacques Chirac |
Forveri | Alain Juppé |
Eftirmaður | Jean-Pierre Raffarin |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 12. júlí 1937 (1937-07-12) (86 ára) Meudon, Hauts-de-Seine, Frakklandi |
Þjóðerni | Franskur |
Stjórnmálaflokkur | Sósíalistaflokkurinn |
Maki | Élisabeth Dannenmuller (skilin) Sylviane Agacinski |
Börn | Eva Hugo |
Háskóli | Stjórnmálaháskóli Parísar Þjóðlegi stjórnsýsluháskólinn |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka