Luis Cubilla
From Wikipedia, the free encyclopedia
Luis Alberto Cubilla Almeida (f. 28. mars 1940 - d. 3. mars 2013) var knattspyrnumaður frá Úrúgvæ. Hann var einn sigursælasti leikmaður sinnar þjóðar og vann fjölda meistaratitla á ferli sínum bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann keppti fyrir hönd landsliðs sinnar þjóðar í þremur heimsmeistarakeppnum í knattspyrnu á árabilinu 1962-74.