![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/84/Mozambique_%2528orthographic_projection%2529.svg/langis-640px-Mozambique_%2528orthographic_projection%2529.svg.png&w=640&q=50)
Mósambík
Land í sunnanverðri Afríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Mósambík (portúgalska: Moçambique, chichewa: Mozambiki, svahílí: Msumbiji, tsonga: Muzambhiki) er land í sunnanverðri Afríku með landamæri að Suður-Afríku, Svasílandi, Tansaníu, Malaví, Sambíu og Simbabve. Landið fékk sjálfstæði 1975, eftir vopnaða baráttu, og var í bandalagi við Sovétríkin á tímum Kalda stríðsins. Árið 1982 hófst borgarastyrjöld sem stóð til 1992. Mósambík er frá 1995 hluti af breska samveldinu þótt það hafi ekki verið bresk nýlenda, heldur portúgölsk.
Republica de Moçambique | |
![]() |
![]() |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Patria Amada | |
![]() | |
Höfuðborg | Mapútó |
Opinbert tungumál | portúgalska |
Stjórnarfar | Forsetaræði |
Forseti | Filipe Nyusi |
Forsætisráðherra | Carlos Agostinho do Rosário |
Sjálfstæði | |
• frá Portúgal | 25. júní 1975 |
• Núverandi stjórnarskrá | 30. nóvember 1990 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
35. sæti 801.590 km² 2,2% |
Mannfjöldi • Samtals (2018) • Þéttleiki byggðar |
50. sæti 29.496.004 29/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 41,473 millj. dala (116. sæti) |
• Á mann | 1.331 dalir (179. sæti) |
VÞL (2018) | ![]() |
Gjaldmiðill | metical |
Tímabelti | UTC+2 |
Þjóðarlén | .mz |
Landsnúmer | +258 |
Mósambík fékk sjálfstæði 1975, eftir vopnaða baráttu, og var í bandalagi við Sovétríkin á tímum Kalda stríðsins. Árið 1982 hófst borgarastyrjöld sem stóð til 1992. Mósambík er frá 1995 hluti af breska samveldinu þótt það hafi ekki verið bresk nýlenda, heldur portúgölsk. Árið 1990 var samþykkt ný stjórnarskrá í landinu, en samkvæmt henni er landið nú lýðræðisríki. Árið 1994 voru fyrstu frjálsu kosningarnar haldnar í landinu og var Joaquim Chissano kjörinn forseti með 53% atkvæða.
Ísland rak sendiráð í Mósambík frá árinu 2001 til loka árs 2017.