Múhameð Mossadek
Forsætisráðherra Írans (1882–1967) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Múhameð Mossadek (محمد مصدق á persnesku) (16. júní 1882 – 5. mars 1967) var íranskur stjórnmálamaður. Hann var leiðtogi lýðræðislega kjörinnar ríkisstjórnar[1][2][3] og sat sem forsætisráðherra Írans frá 1951 til 1953 en þá var stjórn hans steypt af stóli í valdaráni sem bandarísku og bresku leyniþjónusturnar studdu.[4][5]
Múhameð Mossadek محمد مصدق | |
---|---|
Forsætisráðherra Írans | |
Í embætti 28. apríl 1951 – 16. júlí 1952 | |
Þjóðhöfðingi | Múhameð Resa Pahlavi |
Forveri | Ahmad Qavam |
Eftirmaður | Fazlollah Zahedi |
Í embætti 21. júlí 1952 – 19. ágúst 1953 | |
Þjóðhöfðingi | Múhameð Resa Pahlavi |
Forveri | Hossein Ala' |
Eftirmaður | Ahmad Qavam |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 16. júní 1882 Teheran, Persíu |
Látinn | 5. mars 1967 (84 ára) Ahmadabad-e Mosaddeq, Íran |
Stjórnmálaflokkur | Þjóðfylkingin (1949–1967) |
Maki | Zahra Khanum (g. 1901; d. 1965) |
Börn | 5 |
Háskóli | Sciences Po Háskólinn í Neuchâtel |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Mossadek var rithöfundur, lögfræðingur og áhrifamikill þingmaður. Stjórn hans stóð fyrir ýmsum samfélags- og stjórnarumbótum eins og velferðarráðstöfunum og jarðeignarumbótum, þ. á m. skattlagningu á jarðleigu. Mikilvægasta stefna ríkisstjórnar hans var þjóðnýting íranska olíuiðnaðarins, sem hafði verið undir stjórn Breta frá árinu 1913 í gegnum ensk-persneska olíufélagið (e. Anglo-Persian Oil Company; APOC).[6]
Margir Íranar telja Mossadek helsta talsmann veraldlegs lýðræðis og andstöðu við erlendum yfirráðum í nútímasögu Írans. Mossadek var steypt frá völdum árið 1953 í valdaráni sem bandaríska leyniþjónustan skipulagði og framkvæmdi að áeggjan MI6, sem völdu síðan íranska hershöfðingjann Fazlollah Zahedi til að taka við völdum.[7]
Á vesturlöndum er valdaránið yfirleitt kallað „Ajax-aðgerðin“[8], sem var heiti aðgerðarinnar innan bandarísku leyniþjónustunnar. Í Íran er valdaránið kallað „valdaránið 28. Mordad 1332“ í höfuðið á dagsetningu þess á íranska dagatalinu.[9] Mossadek var fangelsaður í þrjú ár og síðan settur í stofufangelsi þar til hann lést og var þá grafinn á heimili sínu til að koma í veg fyrir pólitískan usla.