Manska
From Wikipedia, the free encyclopedia
Manska eða Manar-gelíska (Gaelg eða Gailck) er keltneskt tungumál sem talað er á eynni Mön í Írlandshafi. Tungumálið hafði verið talið útdautt, því síðasti málhafinn lést árið 1974, en málið hefur verið endurreist og er talað í vaxandi mæli í dag. Málið er náskylt írsku og skoskri gelísku, auk þess sem greinileg áhrif eru úr norrænu. Á árinu 2011 voru talendur málsins um 100.
Staðreyndir strax Manska Gaelg / Gailck, Opinber staða ...
Manska Gaelg / Gailck | ||
---|---|---|
Málsvæði | Mön | |
Fjöldi málhafa | um 100 | |
Ætt | Indóevrópskt Keltneskt Eyjakeltneskt Gelískt Manska | |
Skrifletur | Latneskt stafróf | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
Mön | |
Stýrt af | Coonseil ny Gaelgey | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | gv | |
ISO 639-2 | glv | |
ISO 639-3 | glv | |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Loka