Mikliskurður
lengsti manngerði vatnavegur heims er í Austur-Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Mikliskurður (eða Keisaraskurðurinn) (kínverska: 大运河; rómönskun: Dà yùnhé), er samheiti á manngerðum skipa- og áveituskurðum í Austur Kína; 1.794 kílómetrar að lengd; að jafnaði 30,5 metrar á breidd og 4.6 - 6 metra á dýpt. Með skipastigum rís hann hæst í 42 metra. Skurðirnir tengja saman tvö helstu fljót Kína: Gulafljót og Jangtse, auk annarra fljóta og vatna. Skurðirnir eru elstu skipaskurðir heims. Gerð þeirra hefur staðið yfir í meira en 2.000 ár.
Kínverjar þekkja „Miklaskurð“ sem Jing – Hang skurðinn (kínverska: 京杭大运河; rómönskun: Jīng-Háng Dà Yùnhé), sem þýðir bókstaflega „Beijing – Hangzhou skurðurinn“ þar sem hann byrjar í höfuðborginni Beijing; fer um borghéraðið Tianjin, Hebei hérað, strandhéruðin Shandong, Jiangsu og Zhejiang; og endar í Hangzhou borg í Zhejiang héraði.