![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/0e/Hrushevskyi_Mykhailo_XX.jpg/640px-Hrushevskyi_Mykhailo_XX.jpg&w=640&q=50)
Mykhajlo Hrúsjevskyj
Úkraínskur sagnfræðingur og stjórnmálamaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
Mykhajlo Serhíjovytsj Hrúsjevskyj[1] (úkraínska: Михайло Сергійович Грушевський; 29. september 1866 – 24. nóvember 1934) var úkraínskur fræðimaður, stjórnmálamaður og sagnfræðingur sem var einn mikilvægasti aðilinn í endurvakningu úkraínskrar þjóðernisvitundar snemma á 20. öld. Hann var einn helsti leiðtogi úkraínsku þjóðernishreyfingarinnar á árunum fyrir rússnesku byltinguna og á byltingarárunum var hann um skeið forseti miðstjórnar úkraínska alþýðulýðveldisins. Eftir að Úkraína varð hluti af Sovétríkjunum var hann leiðandi í menningarlífi úkraínska sovélýðveldisins.
Staðreyndir strax Forseti miðstjórnar Úkraínu, Forveri ...
Mykhajlo Hrúsjevskyj Михайло Грушевський | |
---|---|
![]() | |
Forseti miðstjórnar Úkraínu | |
Í embætti 28. mars 1917 – 29. apríl 1918 | |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Pavlo Skoropadskyj (sem höfuðsmaður Úkraínu) |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 29. september 1866 Kholm, Póllandi |
Látinn | 24. nóvember 1934 (68 ára) Kíslovodsk, Norður-Kákasus, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Þjóðerni | Úkraínskur |
Stjórnmálaflokkur | Úkraínski sósíalista-byltingarflokkurinn |
Maki | María-Ívanna Hrúsjevska |
Börn | 1 |
Háskóli | Háskóli Heilags Valdimars í Kænugarði |
Undirskrift | ![]() |
Loka