![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/af/%25D8%25AA%25D8%25AE%25D8%25B7%25D9%258A%25D8%25B7_%25D8%25A7%25D8%25B3%25D9%2585_%25D9%2585%25D8%25AD%25D9%2585%25D8%25AF.png/640px-%25D8%25AA%25D8%25AE%25D8%25B7%25D9%258A%25D8%25B7_%25D8%25A7%25D8%25B3%25D9%2585_%25D9%2585%25D8%25AD%25D9%2585%25D8%25AF.png&w=640&q=50)
Múhameð
Arabískur trúarleiðtogi og stofnandi íslamstrúar / From Wikipedia, the free encyclopedia
Múhameð (محمد Muhammad) er, samkvæmt íslam, síðasti spámaður Guðs á jörðinni. Hann var uppi frá 570 til 632. Markar fæðing hans eins konar nýja tíma í Mið-Austurlöndum þar sem hann fæðist um svipað leiti og fornöldinni lýkur. Múhameð er sá spámaður sem Allah sendi síðastan, en áður hafði hann sent Adam, Nóa, Móse og Jesú.[1] Múhameð taldi sig kominn til að fullkomna verk eldri spámanna og taldi sig upphaflega til kristinna og gyðinga.
Múhameð | |
---|---|
![]() Arabísk leturtákn sem tákna nafn Múhameðs. | |
Fæddur | Muḥammad ibn `Abd Allāh 570 |
Dáinn | 8. júní 632 |
Þekktur fyrir | Að boða íslamstrú |
Ef litið er á Kóraninn sem verk Múhameðs, en ekki guðs, tryggir það honum sess sem skapara mikils menningarafreks.[2]
Múhameð lagði mesta áherslu á gjafmildi, greiðasemi, lausn fanga og ættrækni. Hann var mjög á móti útburði meybarna, sækir hann það til kristinna nágranna sinna og gyðinga.[3]
Dauða Múhameðs bar brátt að og því hafði hann ekki valið eftirmann sinn og síðan hafa staðið deilur á milli hópa múslima um hver hann sé.[1]