Nútíma ryþmablús
From Wikipedia, the free encyclopedia
Nútíma ryþmablús er tónlistarstefna sem teygir anga sína víða. Hún sameinar einkenni ryþmablús, popp tónlistar, hipp hopp, raftónlistar, sálartónlistar og fönk. Flytjendur hennar eru mestmegnis Afrísk-Amerískir tónlistarmenn. Upphaflega var talað um ryþmablús sem tónlistarstefnu svartra manna í Bandaríkjunum á 5. og 6. áratugnum þegar taktfastari tónlist byggð á jazz og blús var við lýði. Þrátt fyrir það þekkist nútíma ryþmablús aðallega sem ryþmablús eða einfaldlega undir skammstöfuninni R&B.
Staðreyndir strax Uppruni, Hljóðfæri ...
Nútíma Ryþmablús | |
---|---|
Uppruni | 9. áratugurinn í Bandaríkjunum; New York, Los Angeles, Atlanta |
Hljóðfæri | Hljóðgervill, Trommuheili, Söngur, Hljómborð, Rapp |
Tengdar stefnur | |
Hipp-hopp – Sálartónlist - Ný-pörupilta sveifla |
Loka