Peking
Borghérað og höfuðborg Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Peking (stundum ritað Beijing) er höfuðborg Alþýðulýðveldisins Kína. Á kínversku Beijingⓘ, (北京), merkir nafnið „Norður-höfuðborg“. Norður, vestur og suður af Peking er Hebei-hérað og í suðaustri er sveitarfélagið Tianjin.
Staðreyndir strax Land, Borghérað ...
Peking 北京 | |
---|---|
Hnit: 39°54′24″N 116°23′51″A | |
Land | Kína |
Borghérað | Beijing |
Stofnun | 1045 f.Kr. |
Borgarhluti | 16 borgarhverfi, 343 bæjarfélög og undirhverfi |
Stjórnarfar | |
• Flokksritari | Yin Li |
• Borgarstjóri | Yin Yong |
Flatarmál | |
• Samtals | 16.410,5 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 43,5 m |
Mannfjöldi (2020) | |
• Samtals | 21.893.095 |
• Þéttleiki | 1.300/km2 |
Póstnúmer | 100000–102629 |
Tímabelti | UTC+08:00 |
Vefsíða | http://www.beijing.gov.cn/ |
Loka
Árið 2020 bjuggu um 19 milljónir búa í Peking í borgarkjarnanum, en heildaríbúafjöldi undir lögsögu borgarinnar (stórborgarsvæðinu) var um 21,9 milljónir. Peking er miðpunktur mennta og menningar auk þess sem stjórnvöld stýra landinu þaðan. Sjanghæ og Hong Kong eru hins vegar meira áberandi hvað varðar efnahagsleg umsvif. Borgin er kunn fyrir ríkulegar hallir, hof og gríðarstóra steinveggi og hlið. Listasöfn borgarinnar og háskólar hennar gera hana að menningarmiðstöð landsins.