Rúmenía
land í Suðaustur-Evrópu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Rúmenía (rúmenska: România) er land í Suðaustur-Evrópu vestur af Svartahafi. Rúmenía á landamæri að Úkraínu og Moldóvu í norðaustri, Ungverjalandi og Serbíu í vestri og Búlgaríu í suðri. Í miðju landinu er Transilvaníusléttan, sem er afar frjósöm og fjallend. Rúmeníu er skipt upp í 41 sýslu eða judeţe.
Rúmenía | |
România | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Desteapta-te, Romane! | |
Höfuðborg | Búkarest |
Opinbert tungumál | rúmenska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | Klaus Iohannis |
Forsætisráðherra | Marcel Ciolacu |
Sjálfstæði | frá Tyrkjaveldi |
• Sjálfstæði | 9. maí 1877 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
81. sæti 238.397 km² 3 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
61. sæti 19.317.984[1] 84,4/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2021 |
• Samtals | 636,481 millj. dala (36. sæti) |
• Á mann | 32.950 dalir (44. sæti) |
VÞL (2019) | 0.828 (49. sæti) |
Gjaldmiðill | Leu |
Tímabelti | UTC+2 (UTC+3 á sumrin) |
Þjóðarlén | .ro |
Landsnúmer | +40 |
Rúmenía er 238.391 ferkílómetrar og þar með tólfta stærsta land Evrópu. Í Rúmeníu búa tæpar 20 milljónir[1] (2011) (90% rúmenskumælandi, 7% ungverskumælandi og 3% eru sígaunar eða koma annars staðar frá). Tvær milljónir búa í höfuðborginni Búkarest, sem er fjölmennasta borgin, en helstu stórborgir Rúmeníu eru með svipaðan íbúafjölda og á öllu Íslandi: Galati (249 þúsund), Iasi (290 þúsund), Cluj-Napoca (324 þúsund), Timisoara (319 þúsund), Craiova (269 þúsund), Constanta (283 þúsund) og Brasov (253 þúsund) (2011).
Opinbert tungumál landsins er rúmenska. Verg þjóðarframleiðsla ársins 2004 var rúmir 73 milljarðar Bandaríkjadala og hafði þá vaxið að raungildi um 8,3% frá árinu áður. Helstu áskoranir efnahagslífsins árið 2005 litu þannig út að verðbólgan var 8,6% og atvinnuleysið 5,9%.