Rauðbý eða rautt hunangsbý (fræðiheiti: Apis koschevnikovi[1]) er býflugnategund með útbreiðslu í suðaustur Asíu (Malakkaskaga, Borneó og Súmötru). Fræðiheitið er til heiðurs Grigory Kozhevnikov sem var brautryðjandi í Samanburðarlíffærafræði býflugna. Þær eru allnokkuð stærri en austurasíubý, rauðbrún á Borneó en dökk koparlituð á Súmötru og Malakkaskaga. Þær mynda oft bú með eða nálægt Apis dorsata. Lítil samkeppni er milli þeirra og þar veldur veldur helst stærðarmunur og lengd tungu. Einnig er munur á mökunartíma sem kemur í veg fyrir blöndun við risabý og austurasíubý.
Þær eru með sína eigin tegund af sníkjudýrinu Varroa; Varroa rindereri[2] og virðist hún ekki leggjast á leggjast á aðrar tegundir, jafnvel þegar bú þeirra eru mjög nálægt búum rauðbýa.
Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun, Samheiti ...
|
Vísindaleg flokkun |
|
|
Samheiti |
- Apis cerana koschevnikovi Enderlein, 1906
- Apis indica koschevnikovi Enderlein, 1906
- Apis mellifica indica var koschevnikovi Buttel-Reepen 1906
- Apis (Sigmatapis) vechti vechti Maa, 1953
- Apis (Sigmatapis) vechti linda Maa, 1953
|
Loka