Reif
From Wikipedia, the free encyclopedia
Reif-partý (oftast kallað reif) (enska: rave) er tónlistarpartýi, þar sem raftónlist og flott ljósa- eða leysisýning spila stórt hlutverk. Í svona partýi dansar fólk og blandar saman geði við danstónlist leikna af plötusnúðum. Tegundirnar af raftónlistinni sem spiluð er eru gífurlega margar eins og house, trans, teknó, jungle, beakbeat, liquid funk, trommur og bassi, döbbstepp, harðkjarna teknó, eurodance og flestar aðrar raftónlistarstefnur og með þessu eru ljósasýningar, ljóma stafir, skjávarpaðar myndir, líkamsmálning og reykvélar ómissandi. Reif (rave) á uppruna sinn að rekja til Stóra-Bretlands og var það virkilega vinsælt í byrjun 10. áratugarins en þó hafa þau verið haldin í annarri mynd en við þekkjum í dag allt síðan á 6. áratugnum.