Reykjavíkurflugvöllur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Staðreyndir strax IATA: RKV – ICAO: BIRK, Yfirlit ...
Reykjavíkurflugvöllur | |||
---|---|---|---|
Reykjavíkurflugvöllur séður úr vestri. | |||
IATA: RKV – ICAO: BIRK | |||
Yfirlit | |||
Gerð flugvallar | Almennur | ||
Eigandi | Íslenska ríkið | ||
Rekstraraðili | Isavia | ||
Þjónar | Reykjavík | ||
Staðsetning | Vatnsmýri í Reykjavík | ||
Hæð yfir sjávarmáli | 14 m / 45 fet | ||
Hnit | 64°07′48″N 021°56′26″V | ||
Heimasíða | isavia.is | ||
Flugbrautir | |||
Stefna | Lengd | Yfirborð | |
m | fet | ||
01/19 | 1,567 | 5.141 | Malbik |
06/24 | 960 | 3.150 | Malbik |
13/31 | 1.230 | 4.035 | Malbik |
Tölfræði (2014) | |||
Farþegar innanlands | 328.205 | ||
Farþegar milli landa | 36.544 | ||
Flughreyfingar innanlands | 60.447 | ||
Flughreyfingar milli landa | 3.233 | ||
Heimildir: Flughandbók (AIP) - Ísland[1] |
Loka
Reykjavíkurflugvöllur (IATA: RKV, ICAO: BIRK) er flugvöllur í Vatnsmýri í Reykjavík. Flugrekstur hófst þar árið 1919 við mjög frumstæðar aðstæður. Bretar gerðu svo varanlegan flugvöll þar í síðari heimsstyrjöld sem Íslendingar fengu full yfirráð yfir í stríðslok. Innanlandsflug hefur síðan þá haft miðstöð sína á vellinum og einnig gerðu Loftleiðir út þaðan til 1962 en þá var farið að nota Keflavíkurflugvöll fyrir millilandaflug.
Árið 2008 fóru 426.971 flugfarþegar um völlinn í innanlandsflugi og 36.918 í millilandaflugi (Grænland og Færeyjar).[2]