Saarland
eitt af 16 sambandslöndum Þýskalands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Saarland er minnsta sambandsland Þýskalands utan borgríkjanna Berlín, Hamborg og Bremen, aðeins 2.569 km² að flatarmáli. Íbúarnir eru aðeins tæp ein milljón (2021), sem gerir Saarland að næstfámennasta sambandslandi Þýskalands. Aðeins Bremen er fámennari. Saarland hefur lengi verið bitbein milli Þýskalands og Frakklands, rétt eins og Elsass (Alsace) og Lothringen (Lorraine).
Nánari upplýsingar Fáni Saarlands, Skjaldarmerki Saarlands ...
Fáni Saarlands | Skjaldarmerki Saarlands |
---|---|
Upplýsingar | |
Höfuðstaður: | Saarbrücken |
Stofnun: | 1. janúar 1957 |
Flatarmál: | 2.569,69 km² |
Mannfjöldi: | 980.000 (2021) |
Þéttleiki byggðar: | 385/km² |
Vefsíða: | saarland.de |
Stjórnarfar | |
Forsætisráðherra: | Tobias Hans (CDU) |
Lega | |
Loka