Saga Reykjavíkur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Saga Reykjavíkur hefst þegar Ingólfur Arnarson settist að í Reykjavík þegar hann kom frá Noregi í kringum árið 874 ásamt öðrum og nam land. Þéttbýlismyndun varð ekki í Reykjavík fyrr en undir lok nítjándu aldar en þá hófst einnig iðnvæðing Íslands. Í byrjun tuttugustu aldarinnar óx Reykjavík hratt og þar voru mikilvægustu stofnanir landsins. Reykjavík var höfuðborg Íslands í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Þar var Alþingi þegar það var endurreist sem ráðgefandi þing árið 1845 og eftir að heimastjórn var komið á 1904 var þar einnig Stjórnarráðið.
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Aðalvandamál þessarar greinar: Vantar 21. öld |