Samgöngustofa
stjórnsýslustofnun samgöngumála á Íslandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun samgöngumála á Íslandi. Hún fer með stjórnsýslu og eftirlit er varðar flug, siglingar, umferð, sem og öryggiseftirlit með samgöngumannvirkjum og leiðsögu. Henni er ætlað að stuðla að öruggum, sjálfbærum, greiðum og hagkvæmum samgöngum í landinu. Stofnunin sem hóf starfssemi árið 2013, hefur aðsetur í Reykjavík og er með starfsstöðvar í Stykkishólmi og á Ísafirði.