Selma Björnsdóttir
íslensk söng- og leikkona / From Wikipedia, the free encyclopedia
Selma Björnsdóttir (f. 13. júní 1974), þekkt sem Selma, er íslensk söngkona, leikkona og leikstjóri sem öðlaðist mikla frægð eftir að hún hafnaði í öðru sæti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 1999 með laginu „All Out of Luck“ sem var þá besti árangur Íslands í keppninni. Sama ár gaf hún gaf út sólóplötuna sína I Am, sem varð söluhæsta hljómplata ársins á Íslandi. Selma hefur síðan gefið út tvær aðrar hljómplötur (Life Won't Wait og Alla leið til Texas) sem einsöngkona og tvær safnplötur ásamt Hönsu (Sögur af sviðinu og Sögur af konum). Hún hefur einnig notið mikilla vinsælda sem sviðsleikkona í leiksýningum eins og Grease, Ávaxtakörfunni og Litlu hryllingsbúðinni og unnið sem leikstjóri á leiksýningum á borð við Vesalingana og Gosa.