Shijiazhuang
höfuðborg og stærsta borg Hebei héraðs í norðurhluta Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Shijiazhuang (kínverska: 石家庄; rómönskun: Shíjiāzhuāng; Shih-chia-chuang), er höfuðborg og stærsta borg Hebei héraðs í norðurhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Hún er stjórnsýslu-, efnahags- vísinda- menningar- og samgöngumiðstöð héraðsins. Borgin er í suð-miðhluta héraðsins, norðvestur af Norður-Kína sléttunni. Hún situr við suðurbakka Hutuo-fljóts og við rætur Taihang-fjalla í vestri. Þetta er ung borg, formlega stofnað árið 1939 og fékk nafnið Shijiazhuang árið 1947 og titilinn héraðshöfuðborg árið 1968. Þessi mikla iðnaðarborg er ein megin flutningamiðstöð Kína. Íbúðafjölgun þessarar risaborgar hefur verið gríðarleg síðustu áratugi. Árið 2020 bjuggu á stórborgarsvæði Shijiazhuang um 11,3 milljónir manna.