Smásaga
From Wikipedia, the free encyclopedia
Smásaga er stutt skálduð frásögn í lausu máli sem er öllu hnitmiðaðri en lengri skáldverk, eins og til dæmis skáldsagan og nóvellan. Í smásögu er oftast aðeins um eina aðalpersónu að ræða og einn tiltekinn atburð í lífi hennar, viðbrögð hennar við honum og/eða öðrum persónum. Góð smásaga getur með fáum orðum brugðið upp ljósi sem fær lesandanum innsýn inn í gangverk persónunnar og ævi hennar.