From Wikipedia, the free encyclopedia
Metorð, myndvídd, tign eða stétt[1] (enska, rank) fylkis í línulegri algebru segir til um það hver vídd grunnsins er; og jafngildir línuvíddinni og líka dálkvíddinni þar sem dálkvíddin og línuvíddin hafa alltaf sama gildi. Metorð fylkisins A er oft táknað með rithættinum rk(A) eða rank A.
Línuvídd (e. row rank) fylkisins A er hlutrúmið sem línuvigrar fylkisins A spanna, og dálkvídd (e. column rank) fylkisins A er hlutrúmið sem dálkvigrar fylkisins A spanna.
Auðveldasta leiðin til að reikna metorð fylkis A er með því að nota Gauss-eyðingu. Stallað form fylkisins A er jafnt metorði fylkisins A, og hægt er að reikna út metorðið með því að telja hve margar línur á stallaða forminu innihalda aðrar tölur en núll.
Hér er 4×3 fylki tekið fyrir:
Eftir að þetta fylki hefur verið sett á stallað form með Gauß-eyðingunni þá fæst út:
sem hefur þrjár raðir sem eru ekki núll. Af því sést að metorð þess er jafnt og 3.
Hér er 4×4 fylki tekið fyrir:
Eftir að þetta fylki hefur verið sett á stallað form með Gauß-eyðingunni þá fæst út:
sem hefur tvær raðir sem eru ekki núll. Af því sést að metorð þess er jafnt og 2.
Eftir að þetta fylki hefur verið sett á stallað form með Gauß-eyðingunni þá fæst út:
sem hefur tvær raðir sem eru ekki núll. Af því sést að metorð þess er jafnt og 2.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.