![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3c/Great_Game_cartoon_from_1878.jpg/640px-Great_Game_cartoon_from_1878.jpg&w=640&q=50)
Stórleikurinn
From Wikipedia, the free encyclopedia
Stórleikurinn er heiti á samkeppni milli Breska heimsveldisins og Rússaveldis um áhrif í Mið-Asíu, einkum í Afganistan, Persíu og Tíbet, á 19. öld. Þessi tvö nýlenduveldi notuðu bæði hernaðaríhlutun og samninga til að tryggja sér áhrifasvæði og hafa áhrif á landamæri í Mið-Asíu og Suður-Asíu. Rússland lagði Túrkestan undir sig á meðan Bretar þöndu út mörk Breska Indlands. Snemma á 20. öld höfðu risaveldin náð að skapa röð leppríkja og verndarríkja sem náði frá strönd Kaspíahafs að Austur-Himalajafjöllum.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3c/Great_Game_cartoon_from_1878.jpg/640px-Great_Game_cartoon_from_1878.jpg)
Stórleikurinn varð aldrei að beinni styrjöld milli Rússlands og Bretlands, en átök þeirra í Krímstríðinu 1853 til 1856 höfðu áhrif. Risaveldin áttu líka með sér samstarf, eins og í Afgönsku landamæranefndinni 1884 til 1886.