Svíþjóð í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
yfirlit um þátttöku Svíþjóðar í Eurovision / From Wikipedia, the free encyclopedia
Svíþjóð hefur tekið þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 62 sinnum síðan að frumraun landsins í keppninni átti sér stað árið 1958. Landið hefur einungis ekki keppt í þrjú skipti síðan (1964, 1970 og 1976). Síðan 1959 hefur sænska framlagið verið valið í gegnum sjónvarpsflutta keppni. Síðan 1967 hefur hún gengið undir nafninu Melodifestivalen. Í keppninni árið 1997 var Svíþjóð eitt af fyrstu löndunum til að taka upp símakosningu. Svíþjóð er eina landið sem hefur haldið keppnina á fimm mismunandi áratugum, þrisvar í Stokkhólmi (1975, 2000, 2016), tvisvar í Malmö (1992, 2013) og einu sinni í Gautaborg (1985).
Svíþjóð | |
---|---|
Sjónvarpsstöð | Sveriges Television (SVT) |
Söngvakeppni | Melodifestivalen |
Ágrip | |
Þátttaka | 62 (61 úrslit) |
Fyrsta þátttaka | 1958 |
Besta niðurstaða | 1. sæti: 1974, 1984, 1991, 1999, 2012, 2015, 2023 |
Núll stig | 1963 |
Tenglar | |
Síða SVT | |
Síða Svíþjóðar á Eurovision.tv |
Svíþjóð deilir besta árangrinum í keppninni með Írlandi og hefur unnið í sjö skipti. Landið er með flestu topp-5 úrslit á 21. öldinni, eða samtals þrettán. Í heildina hefur Svíþjóð endað 26 sinnum í efstu fimm sætunum. Sigrarnir sjö voru með ABBA (1974), Herreys (1984), Carola (1991), Charlotte Nilsson (1999), Loreen (2012 og 2023) og Måns Zelmerlöw (2015).