Tálknamandra
From Wikipedia, the free encyclopedia
Tálknamandra (Mexíkómandra[1]) (fræðiheiti: Ambystoma mexicanum) er af ættbálki salamandra. Ólíkt flestum öðrum froskdýrum þá skipta tálknamöndrur ekki um búsvæði, þær eyða allri ævi sinni í vatni. Þær eru einstakar meðal froskdýra að því leyti hjá þeim á myndbreyting sér ekki stað[2]. Þær verða í raun að fullþroskuðum halakörtum, halda mörgum eiginleikum frá lirfustiginu en þeim vaxa útlimir á síðara þroskaskeiði. Þær verða kynþroska á lirfustiginu[3].
Tálknamandra | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Tálknamandra sem skortir litarefni | ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Ambystoma mexicanum (Shaw, 1789) | ||||||||||||||
Heimkynnin eru merkt með rauðu. Alríkishérað Mexíkó | ||||||||||||||
Tálknamöndrur geta lifað í allt að 15 ár, en meðalævi tálknamöndru er 10 ár[4]. Samkvæmt válista IUCN[5] er tegundin í mikilli útrýmingarhættu og er meðal annars í hættu vegna eyðileggingar búsvæða og vegna veiði, en þær voru bæði veiddar til matar og eins lifandi til að ala í búrum og sem tilraunadýr.