Týr
Guð hernaðar í norrænni goðafræði / From Wikipedia, the free encyclopedia
Týr er einhentur guð hernaðar í norrænni goðafræði, en einnig goð himins og þings. Hann missti höndina þegar æsir plötuðu Fenrisúlfinn til að láta binda sig með galdrakeðjunni Gleipni og gera þannig Miðgarð að öruggari stað fyrir mannkynið. Týr er talinn vera sonur Óðins, en hann hefur einnig verið talinn sonur Hymis út frá því sem sagt er í Hymiskviðu. Hann var hugprúðastur og djarfastur allra ása og eru af honum margar sagnir. Stríðsmenn ristu galdrastaf hans á skefti sverða sinna og ákölluðu hann áður en þeir lögðu til atlögu í bardaga. Týsdagur var nefndur eftir ásnum.
- Týr getur einnig átt við karlmannsnafnið Tý