Tancredo Neves
Brasilískur stjórnmálamaður (1910-1985) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Tancredo de Almeida Neves (4. mars 1910 – 21. apríl 1985) var brasilískur stjórnmálamaður, lögfræðingur og viðskiptamaður. Hann var dóms- og innanríkismálaráðherra frá 1953 til 1954, forsætisráðherra frá 1961 til 1962, fjármálaráðherra árið 1962 og fylkisstjóri Minas Gerais frá 1983 til 1984.
Staðreyndir strax Forseti Brasilíu (kjörinn; tók ekki við embætti), Varaforseti ...
Tancredo Neves | |
---|---|
Forseti Brasilíu (kjörinn; tók ekki við embætti) | |
Í embætti 15. mars 1985 – 21. apríl 1985 | |
Varaforseti | José Sarney |
Forveri | João Figueiredo |
Eftirmaður | José Sarney |
Forsætisráðherra Brasilíu | |
Í embætti 8. september 1961 – 12. júlí 1962 | |
Forseti | João Goulart |
Forveri | Embætti endurstofnað |
Eftirmaður | Brochado da Rocha |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 4. mars 1910 São João del-Rei, Minas Gerais, Brasilíu |
Látinn | 21. apríl 1985 (75 ára) São Paulo, São Paulo, Brasilíu |
Þjóðerni | Brasilískur |
Stjórnmálaflokkur | Brasilíska lýðræðishreyfingin (Movimento Democrático Brasileiro, MDB) |
Maki | Risoleta Guimarães Tolentino (g. 1938) |
Börn | 3 |
Háskóli | Faculdade de Direito da Universidade Federal de Minas Gerais |
Undirskrift |
Loka
Við endalok brasilísku herforingjastjórnarinnar árið 1985 var Tancredo Neves kjörinn forseti Brasilíu af brasilíska þinginu. Neves átti þá að leiða fyrstu borgaralegu stjórn landsins frá árinu 1964. Neves veiktist hins vegar þann 14. mars 1985, aðeins fáeinum klukkustundum áður en hann átti að sverja embættiseið, og lést þann 21. apríl. Hann settist því aldrei á forsetastól og þess í stað varð það varaforsetinn José Sarney sem tók við embættinu.