![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/06/Theobald_von_Bethmann_Hollweg_by_E._Bieber.jpg/640px-Theobald_von_Bethmann_Hollweg_by_E._Bieber.jpg&w=640&q=50)
Theobald von Bethmann-Hollweg
Kanslari Þýskalands (1856-1921) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Theobald Theodor Friedrich Alfred von Bethmann-Hollweg (29. nóvember 1856 – 1. janúar 1921) var þýskur stjórnmálamaður sem var kanslari þýska keisaraveldisins frá 1909 til 1917. Sem kanslari beitti Bethmann-Hollweg sér fyrir bættu sambandi Þjóðverja við Breta en honum tókst þó ekki að koma í veg fyrir að ríkin tvö lentu í stríði þegar fyrri heimsstyrjöldin braust út árið 1914. Þegar leið á styrjöldina sviptu Vilhjálmur 2. Þýskalandskeisari og síðar hershöfðingjarnir Paul von Hindenburg og Erich Ludendorff Bethmann-Hollweg og borgaralega ríkisstjórn hans flestum völdum. Svo fór að árið 1917 kröfðust Hindenburg og Ludendorff, sem þá höfðu tekið við flestum völdum í Þýskalandi, afsagnar Bethmann-Hollweg úr kanslaraembættinu.
Staðreyndir strax Kanslari Þýskalands, Þjóðhöfðingi ...
Theobald von Bethmann-Hollweg | |
---|---|
![]() Bethmann-Hollweg árið 1914. | |
Kanslari Þýskalands | |
Í embætti 14. júní 1909 – 13. júlí 1917 | |
Þjóðhöfðingi | Vilhjálmur 2. |
Forveri | Bernhard von Bülow |
Eftirmaður | Georg Michaelis |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 29. nóvember 1856 Hohenfinow, Prússlandi |
Látinn | 1. janúar 1921 (64 ára) |
Maki | Martha von Pfuel |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift | ![]() |
Loka