Trínidad og Tóbagó
eyjaríki í Karíbahafi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Trínidad og Tóbagó er eyríki í Karíbahafi, rétt undan norðurströnd Venesúela. Ríkið heitir eftir tveimur stærstu eyjunum, Trínidad og Tóbagó, en eyjaklasanum tilheyra um 21 minni eyjar. Eyjarnar eru sunnan við Grenada sem er hluti af Kulborðseyjum í Litlu-Antillaeyjaklasanum og eru stundum taldar með þeim. Landhelgi eyjanna mætir meðal annars landhelgi Gvæjana, Venesúela og Barbados. Trínidad er stærsta og fjölmennasta eyjan í eyjaklasanum.
Republic of Trinidad and Tobago | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Together we aspire, together we achieve | |
Þjóðsöngur: Forged From The Love of Liberty | |
Höfuðborg | Port of Spain |
Opinbert tungumál | Enska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | Paula-Mae Weekes |
Forsætisráðherra | Keith Rowley |
Sjálfstæði | |
• frá Bretlandi | 31. ágúst 1962 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
165. sæti 5.131 km² ~0 |
Mannfjöldi • Samtals (2016) • Þéttleiki byggðar |
152. sæti 1.353.895 254/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2017 |
• Samtals | 44,654 millj. dala (110. sæti) |
• Á mann | 32.520 dalir (36. sæti) |
Gjaldmiðill | Trínidad- og tóbagódalur |
Tímabelti | UTC-4 |
Þjóðarlén | .tt |
Landsnúmer | +1-868 |
Indíánar frá Suður-Ameríku námu land á eyjunum fyrir að minnsta kosti sjö þúsund árum. Þær urðu spænsk nýlenda eftir heimsókn Kólumbusar 1498 og landnám Spánverja hófst eftir 1530. Á 18. öld byggðust eyjarnar fólki alls staðar að frá Evrópu, Afríku og öðrum Karíbahafseyjum. Bretar hertóku eyjarnar í Napóleonsstríðunum 1797 og juku innflutning þræla. Þrælahald var afnumið 1838. Eftir efnahagsuppgang vegna olíuvinnslu á 6. áratugnum urðu eyjarnar hluti af Vestur-Indíasambandinu 1958 en fengu sjálfstæði 1962. Landið varð lýðveldi innan Breska samveldisins 1976.
Árið 2017 var verg landsframleiðsla á mann á Trínidad og Tóbagó (með kaupmáttarjöfnuði) sú þriðja hæsta í Ameríku, á eftir Bandaríkjunum og Kanada. Heimsbankinn skilgreinir landið sem hátekjuland. Ólíkt öðrum enskumælandi Karíbahafslöndum byggist efnahagur Trínidad og Tóbagó á iðnaði, aðallega framleiðslu eldsneytis og annarra olíuafurða. Landið býr yfir miklum olíu- og jarðgaslindum.
Trínidad og Tóbagó er þekkt fyrir fræga kjötkveðjuhátíð og fyrir að vera upprunaland stálpönnunar, limbódans og tónlistarstefnanna kalypsó og sóka.