From Wikipedia, the free encyclopedia
Tölvunet er hópur samtengdra tölva. Tölvunet er hægt að nota til að deila upplýsingum og gögnum á stafrænu formi. Tölvunet er hægt að flokka í flokka eftir stærð og gerð. Með gerð er bæði átt við gerð einingana sem tengir tölvurnar saman og samskiptastaðlana sem tölvurnar nota. Hér á eftir eru nokkrir flokkar tölvuneta eftir stærð:
Einstaklingsnet eru tölvunet sem ná yfir mjög lítið svæði. Dæmi um einstaklingsnet er samtenging tveggja tölva sem eru við hlið hver annarar. Einnig er það oftast einstaklingsnet þegar skipst er á gögnum í gegnum Bluetooth.
Staðarnet eru tölvunet sem ná yfir lítið svæði svo sem heimili, skrifstofu eða skrifstofubyggingar. Uppbygging staðarneta er oftast á þá leið að einn netþjónn sér um uppihald netsins þó einnig séu til aðrar gerðir staðarneta eins og jafningjanet sem styðjast við samskiptastaðla á borð við IP.
Víðnet er skilgreint sem tölvunet sem nær yfir stórt svæði. Víðnet getur samanstaðið af mörgum minni netum, staðarnetum, sem hafa samskipti sín á milli með beinum. Víðnet eru notuð til að sameina mörg önnur net þannig að hægt sé að hafa samskipti á milli þessara annars aðskildu neta, staðarneta.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.