Vöðvi
Líffræðilegur grunnvefur í stoðkerfi líkama dýra / From Wikipedia, the free encyclopedia
Vöðvi er vefur í stoðkerfi líkamans. Vöðvar skiptast í þrjá flokka; sléttan vöðvavef, þverrákóttan vöðvavef (eða beinagrindarvöðvi) og hjartavöðva. Beinagrindarvöðvar tengjast beinum með sinum og geta dregist saman sem gerir útlimum kleyft að hreyfa sig. Taugakerfið stjórnar hreyfingu vöðvanna með því að hreyfitaugar bera boð til þeirra. Vöðvi er gerður úr vöðvaþráðum.
Heimildum ber ekki saman um fjölda vöðva í mannslíkamanum en líklega eru þeir einhvers staðar á bilinu 640-850. Sumir telja samsettan vöðva sem einn en aðrir telja sérstaklega hvern hluta slíks vöðva. Þannig er til dæmis fjórhöfði í læri gerður úr fjórum hlutum eða vöðvum.