Varsjá
Höfuðborg Póllands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Varsjá (pólska: Warszawa, latína: Varsovia) er höfuðborg Póllands og jafnframt stærsta borg landsins. Borgin liggur við ána Visla og er um það bil 260 km frá Eystrasalti og 300 km frá Karpatafjöllunum. Árið 2021 var íbúafjöldinn tæplega 1,9 milljón manns og 3,1 milljón á stórborgarsvæðinu, þannig er Varsjá 6. fjölmennasta borg Evrópusambandsins. Flatarmál borgarinnar er 517,24 ferkílómetrar en stórborgarsvæðið nær yfir 6.100,43 ferkílómetra. Varsjá er í héraðinu Masóvía og er stærsta borg þess.
Varsjá
Warszawa (pólska) | |
---|---|
Hnit: 52°13′48″N 21°00′40″A | |
Land | Pólland |
Hérað | Masóvía |
Stofnun | 13. öld |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Rafał Trzaskowski |
Flatarmál | |
• Samtals | 517,24 km2 |
Mannfjöldi (2023) | |
• Samtals | 1.863.056 |
• Þéttleiki | 3.601/km2 |
Tímabelti | UTC+1 (CET) |
• Sumartími | UTC+2 (CEST) |
Póstnúmer | 00-001 til 04-999 |
Svæðisnúmer | +48 22 |
Vefsíða | en |
Varsjá er talin heimsborg og er vinsæl ferðamannaborg og mikilvæg fjármálamiðstöð í Mið-Evrópu. [heimild vantar] Hún er einnig þekkt sem „föníxborgin“ af því að hún hefur staðist mörg stríð í gegnum söguna. Helsta þessara stríða var seinni heimsstyrjöldin þar sem 80 % af byggingum í borginni voru eyðilagðar en borgin var endurbyggð vandlega eftir það. Þann 9. nóvember 1940 var borginni gefið hæsta heiðursmerki Póllands, Virtuti Militari, vegna umsátursins um Varsjá (1939).
Borgin er nafni fjölda ríkja, samninga og atburða, meðal þeirra eru Varsjáríkjabandalagið, Varsjárbandalagið, hertogadæmið Varsjá, Varsjársáttmálinn, Varsjársamningurinn, uppreisnin í Varsjá og uppreisnin í Varsjárgettóinu. Óopinber söngur borgarinnar er Warszawianka.