Vetrarundur í Múmíndal
From Wikipedia, the free encyclopedia
Vetrarundur í Múmíndal (á sænsku: Trollvinter) er bók eftir finnlandssænska rithöfundinn og teiknarann Tove Jansson, sem gefin var út árið 1957 af finnska bókaforlaginu Schildts Förlags Ab sem sérhæfir sig í útgáfu á sænsku í Finnlandi.
Staðreyndir strax Höfundur, Upprunalegur titill ...
Höfundur | Tove Jansson |
---|---|
Upprunalegur titill | Trollvinter |
Þýðandi | Steinunn S. Briem |
Land | Finnland |
Tungumál | Sænska |
Ritröð | Múmínálfarnir |
Útgáfudagur | 1957 |
Verðlaun | Elsa Beskow-verðlaunin |
ISBN | ISBN 9789979345213 |
Forveri | Örlaganóttin |
Framhald | Ósýnilega barnið og aðrar sögur |
Loka
Bókin er sjötta bókin í bókaröðinni um Múmínálfana en í bókaröðinni eru alls níu bækur. Fyrir myndskreytingarnar í bókinni hlaut Jansson Elsa Beskow-verðlaunin árið 1958. Vetrarundur í Múmíndal kom fyrst út í íslenskri þýðingu hjá bókaforlaginu Örn og Örlygur 1969 í þýðingu Steinunnar S. Briem[1] og var endurútgefin af Máli og Menningu árið 2003. Hún var önnur bókin til að vera þýdd á íslensku í bókaflokknum, sú fyrsta var Pípuhattur galdrakarlsins sem út kom árið 1968.