Viðarlundin
Almenningsgarður og skógræktarreitur í Þórshöfn í Færeyjum. / From Wikipedia, the free encyclopedia
Viðarlundin (íslenska: Viðarlundurinn), einnig kölluð Plantasjan (danska: Plantagen), er stærsti almenningsgarður Þórshafnar og elsti, stærsti og mest sótti skógur í Færeyjum. Garðurinn er einnig nefndur Viðarlundin í Havn eða Viðarlundin í Gundadali til þess að greina hann frá Viðarlundinum á Debesartrøð og Viðarlundinum í Niðara Hoydali, sem einnig eru í Þórshöfn. Þess má geta að orðið lund er kvenkyns á færeysku og fallbeygist sem slíkt. Skógræktarreitir í Færeyjum eru gjarnan kallaðir viðarlundir.[1]