Vilhjálmur Einarsson
From Wikipedia, the free encyclopedia
Vilhjálmur Einarsson (5. júní 1934 - 28. desember 2019) var íslenskur íþróttamaður og skólastjóri frá Egilsstöðum. Vilhjálmur varð fyrstur Íslendinga til komast á verðlaunapall á Ólympíuleikum er hann hlaut silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu árið 1956.
Árið 1952 vann hann fyrsta mótið sitt í þrístökki en það var landsmót sem haldið var á Eiðum, þar kom hann öllum á óvart. Hann setti Norðurlandamet í þrístökki rétt áður en velja átti keppendur frá Íslandi á Ólympíuleikana í Melbourne í Ástralíu árið 1956 og tryggði það honum þátttöku á leikunum. Hann setti Ólympíumet sem stóð í tvær klukkustundir en hafnaði í öðru sæti. Enn þann dag í dag er Vilhjálmur eini Íslendingurinn sem sett hefur Ólympíumet. Hann varð í þriðja sæti á Evrópumeistaramóti í Stokkhólmi árið 1958, og var það þá næst besti árangur Norðurlandabúa. Hann keppti aftur á Ólympíuleikunum árið 1960 og lenti þar í 5. sæti. Hann varð í sjötta sæti á Evrópumeistarmóti í Belgrad árið 1962 og lauk þar ferli sínum með glæsibrag. Vilhjálmur var valinn fyrsti íþróttamaður ársins á Íslandi þann 20. janúar 1956 og hlaut titilinn fjórum sinnum í viðbót, 1957, 1958, 1960 og 1961. Vilhjálmur er sá íslenski íþróttamaður sem oftast hefur hlotið nafnbótina Íþróttamaður ársins.