Viti
háreist bygging sem sendir út ljósmerki til leiðbeiningar sjófarendum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Viti er háreist, turnlaga bygging, með öflugum ljósgjafa efst. Í myrkri sjá skipstjórnarmenn ljósið og vita þá hvar land er. Hver viti hefur sitt ljóseinkenni, t.d. hvítur þríblossi með 25 sekúndna millibili. Þannig er hægt að gera sér grein fyrir hvaða vita er verið að horfa á frá sjó og staðsetja sig nánar út frá því. Siglingastofnun Íslands hefur umsjón með vitum á Íslandi.
Vitar eru gjarnan á annesjum, og stundum á skerjum, en vitar eru einnig hafðir á baujum á hafi úti. Áður fyrr voru sums staðar notuð vitaskip.
Radíóviti er viti sem sendir útvarpsbylgjur í stað ljóss og er notaður af flugvélum.
Vitinn í Faros telst eitt af sjö undrum veraldar.