Vivienne Isabel Westwood (fædd Swire; 8. apríl 194129. desember 2022) var enskur fatahönnuður og athafnakona sem er þekktust fyrir að hafa gert pönk- og nýbylgjutísku vinsæla á 8. og 9. áratug 20. aldar.

Thumb
Vivienne Westwood árið 2008.

Hún hóf fatahönnunarferil sinn í verslun sem hún rak ásamt kærasta sínum, Malcolm McLaren, á King's Road í London sem seinna fékk nafnið SEX. Þau gerðu meðal annars föt fyrir sviðsetningar, eins og söngleikinn The Rocky Horror Picture Show og bandarísku glamrokksveitina New York Dolls. Árið 1975 setti McLaren saman hljómsveitina Sex Pistols sem hafði mikil áhrif á pönktískuna í Bretlandi á 8. áratugnum.

Westwood átti verslanakeðju sem bar nafn hennar og rak tugi verslana um allan heim. Síðustu ár var hún áberandi í ýmis konar réttindabaráttu. Hún studdi Græningja í enskum stjórnmálum, barðist gegn neysluhyggju og fyrir aukinni sjálfbærni. Hún beitti sér meðal annars fyrir lausn Julian Assange úr haldi. Hún hlaut bresku heimsveldisorðuna árið 1992.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.