Vladímír Lenín
Rússneskur byltingarmaður og stofnandi Sovétríkjanna (1870-1924) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Vladímír Íljítsj Lenín (22. apríl 1870 – 21. janúar 1924, rússneska: Владимир Ильич Ленин), fæddur sem Vladímír Íljítsj Úljanov (rússneska: Владимир Ильич Ульянов) var leiðtogi bolsévísku hreyfingarinnar í Rússlandi snemma á 20. öld. Árið 1917 leiddi hann októberbyltinguna, sem varð til þess að Rússland varð fyrsta kommúníska ríki í heimi. Lenín var fyrsti leiðtogi Sovétríkjanna og af mörgum talinn einn merkasti stjórnmálamaður sögunnar.
Staðreyndir strax Formaður þjóðfulltrúaráðs Sovétríkjanna, Forveri ...
Vladímír Lenín Владимир Ленин | |
---|---|
Formaður þjóðfulltrúaráðs Sovétríkjanna | |
Í embætti 6. júlí 1923 – 21. janúar 1924 | |
Forveri | Fyrstur í embætti |
Eftirmaður | Aleksej Rykov |
Formaður þjóðfulltrúaráðs rússneska sovétlýðveldisins | |
Í embætti 8. nóvember 1917 – 21. janúar 1924 | |
Forveri | Fyrstur í embætti |
Eftirmaður | Aleksej Rykov |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 22. apríl 1870 Símbírsk, Rússlandi |
Látinn | 21. janúar 1924 (53 ára) Gorkí Lenínskíje, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Stjórnmálaflokkur | Bolsévikaflokkurinn (1898–1912) Rússneski kommúnistaflokkurinn (1912–1924) |
Maki | Nadezhda Krúpskaja (g. 1898–1924) |
Foreldrar | Ílja Níkolajevítsj Úljanov og María Aleksandrovna Blank |
Starf | Stjórnmálamaður, lögmaður, byltingarsinni |
Undirskrift |
Loka