Maamme
From Wikipedia, the free encyclopedia
"Maamme" (landið okkar) er þjóðsöngur Finnlands. Heiti þess á sænsku, sem er annað opinbert mál Finnlands, er „Vårt land“.
Lagið er samið af Fredrik Pacius en ljóðið er eftir Johan Ludvig Runeberg, sem samdi það upprunalega á sænsku. Sama lag eftir Pacius er notað í eistneska þjóðsöngnum, sem hefur ljóð í svipuðum dúr. „Mu isamaa“ (Föðurland mitt).