Óslóarfjörður
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Óslóarfjörður (norska: Oslofjorden) er fjörður í suðaustur-Noregi. Hann skiptist í innri- og ytri-Óslóarfjörð. Borgin Ósló er við botn þess innri. Inn úr ytri firðinum eru einnig firðirnir Drammenfjörður og Holmestrandfjörður. Syðri mörk Óslófjarðar eru talin vera frá skerjunum Torbjørnskjær og Færder. Á árunum 1624-1925 var nafnið á firðinum Kristjaníufjörður (norska: Kristianiafjorden). Í norrænu var nafnið á firðinum Fold.


Eyjar nálægt Ósló eru vinsælir útivistarstaðir: Hovedøya, Lindøya, Nakholmen, Bleikøya, Gressholmen og Langøyene. Þá er vanalega farið frá Aker Brygge. Glomma, lengsta fljót landsins, tæmist í fjörðinn.
Hlýjasta loftslag Noregs er við fjörðinn og er ársmeðalhitinn 7,5 gráður.
Remove ads
Heimild
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Óslóarfjörður.
Fyrirmynd greinarinnar var „Oslofjord“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 2. feb. 2018.
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads