Þungunarrof

læknisfræðilegt inngrip í meðgöngu til að fjarlægja fóstur eða fósturvísi From Wikipedia, the free encyclopedia

Þungunarrof
Remove ads

Þungunarrof eða fóstureyðing kallast lok meðgöngu með brottnámi fósturvísis eða fósturs.[1]

Thumb
Sovésk veggmynd sem hvetur konur til að láta framkvæma fóstureyðingu á spítala en ekki í heimahúsum

Þungunarrof, sem gerist án inngrips, kallast fósturlát ; það gerist í u.þ.b. 30% til 40% af öllum meðgöngum.[2][3] Þegar vísvitandi ráðstafanir eru gerðar til að binda enda á meðgöngu er það kallað framkallað þungunarrof .[4][5] Algengustu ástæðurnar sem gefnar eru upp fyrir því að fara í þungunarrof eru vegna óheppilegs tíma og til að takmarka fjölskyldustærð.[6][7][8] Aðrar ástæður sem greint hefur verið frá eru heilbrigði móður, of dýrt að eignast barn, heimilisofbeldi, skortur á stuðningi, fólk telur sig of ungt, vilji til að ljúka menntun eða efla starfsferil og geta ekki eða viljað ala upp barn sem getið er vegna nauðgunar eða sifjaspell.[6][9][10]

Ýmist er gripið inn í með lyfjum eða með aðgerð, við þungunarrof (sem gerist ekki náttúrulega).

Á Íslandi er þungunarrof réttur kvenna (og heimild fyrir stúlkur), en ekki öllum löndum, til að eignast ekki barn, þ.e. fram að lokum 22. viku þungunar (og leyft í undantekningartilfellum síðar), skv. lögum nr. 43 22. maí 2019[11] þar um, sem þá tóku gildi.

Samkvæmt ísleskum lögum skal þungunarrof ætíð framkvæmt eins fljótt og auðið er og helst fyrir lok 12. viku þungunar. Fóstur er þá enn of ungt til að geta lifað af utan móðurkviðs. Skilgreiningar í núverandi (íslenskum) lögum:

Þungunarrof: Lyfjagjöf eða önnur læknisaðgerð sem framkvæmd er að beiðni konu í því skyni að rjúfa þungun.

Fósturfækkun: Þegar læknisfræðilegum aðferðum er beitt við að fækka fóstrum hjá konu sem er þunguð af fleiri en einu fóstri.

Þungunarrof er umdeilt eða bannað í mörgum löndum, og fylgjendur þess að það sé réttur kvenna til þungunarrofs (hið minnsta í visst langan tíma; eða ótakmarkað að mati sumra) nota heldur orðið þungunarrof, en andstæðingar nota frekar orðið fóstureyðing, og margir hverjir vilja engar undantekningar (sumir en ekki allir, vilja t.d. engar undantekningar fyrir stúlkur eða eftir nauðgun). Mörg lönd hafa t.d. leyft fóstureyðingar, eða bannað, og t.d. í Bandaríkjunum hefur Hæstirétturinn þar bæði leyft þær í öllum ríkjunum (Roe vs Wade) og síðar afnumið þann rétt, eða öllu heldur, ekki bannað (á landsvísu) strangt til tekið heldur látið lög viðkomandi ríkja gilda (aftur, sem þýddi sjálfkrafa bann í mörgum, en ekki öllum ríkjunum). Það er óhætt að segja að þetta sé mjög mikið hitamál á báða bóga í sumum löndum eins og þar, og kosningamál þar fyrir marga (og þar mun róttækari aðgerðir gegn, t.d. kröftug mótmæli), mun fremur en að vera eins áberandi á Íslandi. Í evrópu hefur t.d. lengi verið andstaða gegn í Íslandi og löndum þar sem katólska kirkjan hefur mikið ítök.

Þungunarrof sem fram fer á sjúkrahúsum eða læknastofum eru mjög áhættulítið,[12][13] þó því fylgi oft blæðing úr leggöngum og ógleði. Þungunarrof er um 13 sinnum öruggari en barnsfæðing.[14][15]

56 milljón þungunarrof eru framkvæmd á ári í heiminum,[16] nærri því helmingur þeirra er gerður af fólki sem skortir sérkunnáttu eða fylgir ekki hreinlætiskröfum.[17]

Remove ads

Þungunarrof með lyfjum

Ákveðin lyf geta kallað fram þungunarrof. Fyrstu mánuði meðgöngunnar er algengast að nota mifepristone ásamt prostaglandín-eftirhermu.

Neyðargetnaðarvörn

Neyðargetnaðarvörnin flokkast ekki sem þungunarrof heldur kemur hún í veg fyrir getnað. Hún hindrar egglos, en hefur ekki áhrif eftir að blöðrukímið er búið að festa sig í leginu. Neyðargetnaðarvörnin dregur úr líkum á þungun og virkar best þegar hún er tekin fljótt eftir samfarir. Virknin er þó ekki fullkomin, vörnin er aðeins 60%–93% sem er mun minni en sem fæst af þeim getnaðarvörnum sem notaðar eru í forvarnarskyni.[18]

Remove ads

Þungunarrof með aðgerð

Fyrstu mánuði meðgöngunnar er hægt að fjarlægja fóstrið með aðgerð þar sem fóstrið er sogað út með þartilgerðum pinnarörum.[19] Eftir þriðja mánuðinn þarf að nota aðrar aðferðir sem krefjast svæfingar þar sem þá þarf að víkka leggöngin út mun meira, eða þá með því að gera líkt og í keisaraskurði og skera á kviðinn, þó með mun smærri skurði.[20]

Fósturlát

Stundum deyr fóstur af sjálfu sér. Ef það gerist fyrir 24. viku meðgöngu kallast það fósturlát, eftir það er það kallað að barn fæðist andvana.[21] Ef barn fæðist fyrir 37. viku meðgöngu er barnið kallað fyrirburi.[22]

Aðeins 30–50% af fóstrum lifa af fyrstu þrjá mánuði meðgöngu, í flestum tilfellum veit þungaða manneskjan ekki af því að hún sé þunguð.[23] Eftir að þungun hefur verið staðfest enda þó 15%–30% með fósturláti,[24] langflest á fyrstu þremur mánuðum meðgöngunnar.[25]

Algengasta orsök fósturláts eru óeðlilegar litningabreytingar í fóstrinu.[26] Fósturlát getur líka komið fram vegna æðakerfissjúkdóma, sykursýki og annarra hormónasjúkdóma, sýkinga, og brenglana í legi móðurinnar.[27] Auknar líkur eru á fósturláti eftir því sem móðirin er eldri og ef hún hefur fyrri sögu um fósturlát.[28] Fósturlát getur líka komið til vegna áverka, t.d. í bílslysum.[29]

Þungunarrof á Íslandi

Thumb
Lagaleg staða fóstureyðinga á heimsvísu. Þungunarrof á Íslandi er bundið svipuðum lagalegum skilyrðum og í löndum eins og Bretlandi, Finnlandi, Indlandi, Japan, Sambíu en er ekki framkvæmt svo til án skilyrða að ósk móður líkt og í flestum öðrum Evrópulöndum

Á Íslandi er löglegt að rjúfa þungum fram að lokum 22. viku þungunar. Eftir lok 22. viku er mögulegt að rjúfa þungun sé lífi þunguðu manneskjunar stefnt í hættu af meðgöngunni eða þá að fóstrið sé ekki lífvænlegt.

Þessi lög voru víkkuð árið 2019 en fram að því var þungunarrof aðeins leyft vegna sérstakra aðstæðna: Félagslegar, læknisfræðilegar, eða að þungun hafi borið að með refsiverðu athæfi. Hugtakið „félagslegar ástæður“ var nokkuð vítt og var mjög fátítt að beiðni um þungunarrof væri synjað.

Remove ads

Tenglar

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads