1965

ár From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

1965 (MCMLXV í rómverskum tölum) var 65. ár 20. aldar og almennt ár sem hófst á föstudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu.

Atburðir

Janúar

Thumb
Útför Churchills í London.
  • 1. janúar - Palestínsku samtökin Fatah tilkynntu upphaf skæruhernaðar gegn Ísrael.
  • 2. janúar - Bretar sendu herlið til Singapúr til að verja Malasíu gegn væntri innrás frá Indónesíu.
  • 2. janúar - Jamaíski tónlistarmaðurinn Don Drummond stakk kærustu sína, söngkonuna Anita Mahfood, til bana.
  • 3. janúar - Danski uppfinningamaðurinn Karl Krøyer náði að lyfta sokknu fraktskipi af hafsbotni með frauðplastkúlum.
  • 5. janúar - Fyrsti hlaðbakurinn sem fór í almenna framleiðslu, Renault 16, var kynntur á frönsku rívíerunni.
  • 11. janúar - Síðasta þekkta fórnarlamb raðmorðingjans Jack the Stripper var myrt.
  • 12. janúar - Wanda Beach-morðin: Lík tveggja 15 ára stúlkna fundust illa leikin á Wanda Beach í Ástralíu.
  • 20. janúar - Lyndon B. Johnson tók formlega við embætti Bandaríkjaforseta til næstu fjögurra ára.
  • 20. janúar - Sukarno, forseti Indónesíu, tilkynnti úrsögn landsins úr Sameinuðu þjóðunum.
  • 26. janúar - Hindí varð opinbert tungumál á Indlandi í stað ensku.
  • 27. janúar - Herforinginn Nguyễn Khánh framdi valdarán í Suður-Víetnam.
  • 30. janúar - Opinber útför Winston Churchill fór fram í London.

Febrúar

Thumb
Lík Malcolm X flutt frá morðstaðnum í Washington Heights.
  • 4. febrúar - Sovéski búfræðingurinn Trofím Lysjenko var rekinn úr stöðu sinni við Sovésku vísindaakademíuna.
  • 6. febrúar - 87 fórust þegar LAN Chile flug 107 hrapaði í Andesfjöllum eftir flugtak frá Santiago í Chile.
  • 8. febrúar - 84 fórust þegar Eastern Air Lines flug 663 hrapaði í Atlantshafið eftir flugtak frá New York.
  • 9. febrúar - Salvador Dalí málaði málverk af Raquel Welch í hótelherbergi í New York til að kynna nýjustu mynd hennar.
  • 11. febrúar - Eftir tveggja vikna óeirðir tilkynnti forsætisráðherra Indlands, Lal Bahadur Shastri, að hætt hefði verið við að gera hindí að opinberu tungumáli í landinu í stað ensku.
  • 12. febrúar - 29 aðgerðasinnar í Ástralíu fóru í Frelsisferð frumbyggja Ástralíu til að vekja athygli á kynþáttamismunun.
  • 15. febrúar - Kanadíski fáninn með hlynsblaði varð þjóðfáni Kanada í stað kanadíska sjófánans.
  • 17. febrúar - Geimkönnunarfarið Ranger 8 var sent til tunglsins til að finna heppilega lendingarstaði.
  • 18. febrúar - Gambía hlaut sjálfstæði frá Bretlandi.
  • 21. febrúar - Mannréttindafrömuðurinn Malcolm X var myrtur meðan hann hélt ræðu í Harlem.
  • 24. febrúar - Víetnamstríðið: Johnson samþykkti Rolling Thunder-aðgerðina, samfelldar sprengjuárásir á Norður-Víetnam.
  • 27. febrúar - Stærsta skrúfuhreyflavél allra tíma, Antonov An-22, fór í jómfrúarflug sitt.

Mars

Thumb
Göngufólk leggur af stað frá Selma til Montgomery í Alabama.
  • 2. mars - Víetnamstríðið: Bandaríkin hófu loftárásir í Norður-Víetnam sem héldu áfram í 3 og hálft ár.
  • 7. mars - Göngurnar frá Selma til Montgomery: 200 manna lið fylkislögreglunnar í Alabama réðist á mótmælendur með kylfum, táragasi og hestum.
  • 7. mars - Kirkjutilskipunin Sacrosanctum Concilium sem heimilaði aukna notkun þjóðtunga ásamt latínu í kaþólskum messum tók gildi.
  • 8. mars - Um 3500 bandarískir landgönguliðar komu til Đà Nẵng í Víetnam.
  • 18. mars - Sovéski geimfarinn Alexej Leonov fór fyrstur manna í geimgöngu.
  • 20. mars - Lúxemborg vann Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1965 með laginu „Poupée de cire, poupée de son“ sem var flutt af France Gall.
  • 20. mars - Stríð Indlands og Pakistans 1965 hófst.
  • 22. mars - Nicolae Ceaușescu var kjörinn aðalritari rúmenska kommúnistaflokksins.
  • 23. mars - Gemini 3, fyrsta mannaða geimfar NASA, fór á braut um jörðu með tvo geimfara um borð.
  • 25. mars - Um 25.000 manns gengu með Martin Luther King Jr. frá Selma til Montgomery í Alabama.
  • 28. mars - Jarðskjálftinn í Valparaíso 1965 olli því að stíflur brustu og námuúrgangur flæddi yfir bæinn El Cobre þar sem mörg hundruð fórust.

Apríl

Thumb
Særður bandarískur hermaður í Dóminíska lýðveldinu.
  • 1. apríl - Friðrik 9. vígði nýjar höfuðstöðvar danska ríkisútvarpsins, TV-Byen, í Gladsaxe.
  • 1. apríl - Stór-Lundúnaráðið tók við af sýsluráði Lundúna.
  • 4. apríl - Síðasti konungur Sikkim, Palden Thondup Namgyal, var krýndur.
  • 5. apríl - Dans- og söngvamyndin My Fair Lady eftir George Cukor var valin besta myndin á Óskarsverðlaunahátíðinni.
  • 6. apríl - Fyrsti fjarskiptahnöttur einkaaðila, Intelsat I eða „Early Bird“, var sendur á braut um jörðu.
  • 8. apríl - Bandaríkjaþing samþykkti lög um almenna sjúkratryggingu, Medicare.
  • 11. apríl - Yfir 270 fórust og 5000 slösuðust þegar 47 skýstrokkar gengu yfir miðvesturríki Bandaríkjanna.
  • 19. apríl - Gordon Moore setti fram lögmál Moores um að reiknigeta tölva myndi tvöfaldast á tveggja ára fresti í grein í tímaritinu Electronics.
  • 20. apríl - Fyrstu þingkosningarnar fóru fram á Cookseyjum.
  • 21. apríl - Tim Rice sendi Andrew Lloyd Webber bréf með ósk um fund, sem varð upphafið að löngu samstarfi þeirra tveggja.
  • 24. apríl - Borgarastyrjöldin í Dóminíska lýðveldinu: Stuðningsmenn Juan Bosch gerðu uppreisn gegn herforingjastjórninni.
  • 24. apríl - Sukarno tilkynnti að öll fyrirtæki í erlendri eigu í Indónesíu skyldu þjóðnýtt.
  • 26. apríl - Sjónvarpsstöðin TV Globo var stofnuð í Brasilíu.
  • 27. apríl - Átök Indónesíu og Malasíu hófust á Borneó.
  • 28. apríl - Lyndon B. Johnson sendi 24.000 bandaríska hermenn til Dóminíska lýðveldisins til að binda enda á borgarastríðið.
  • 28. apríl - Robert Menzies, forsætisráðherra Ástralíu, tilkynnti að Ástralía myndi senda herlið til stuðnings stjórninni í Suður-Víetnam.

Maí

Thumb
Lockheed YF-12A á flugi.
  • 1. maí - Bandaríska orrustuþotan Lockheed YF-12A setti hraðamet þegar hún náði 3.331,5 km/klst hraða í yfir 24 km hæð.
  • 1. maí - Orrustan um Dongyin átti sér stað í Austur-Kínahafi.
  • 3. maí - Blýárin: Grunnurinn að spennustefnunni var lagður á ráðstefnunni á Parco dei Principi-hótelinu í Róm.
  • 9. maí - Píanóleikarinn Vladimir Horowitz hélt fræga tónleika í Carnegie Hall eftir 12 ára fjarveru frá sviðsljósinu.
  • 9. maí - Sovétmenn sendu ómannaða lendingarfarið Luna 5 til tunglsins.
  • 11. maí - Yfir 10.000 fórust þegar öflugur fellibylur gekk yfir Austur-Pakistan.
  • 14. maí - Sam-ameríska friðargæsluliðið tók við af Bandaríkjaher í Dóminíska lýðveldinu.
  • 20. maí - Vestur-Þýskaland tók upp stjórnmálasamband við Ísrael.
  • 20. maí - 127 fórust þegar Pakistan International Airlines flug 705 hrapaði í eyðimörk í Egyptalandi.
  • 25. maí - Muhammad Ali rotaði Sonny Liston í fyrstu umferð hnefaleikakeppni með „draugahögginu“.
  • 26. maí - Ný og endurskoðuð SOLAS-samþykkt um öryggi mannslífa á hafinu tók gildi eftir að tilskildum fjölda undirskrifta var náð.
  • 27. maí - Kolmårdens-dýragarðurinn var opnaður í Norrköping í Svíþjóð.
  • 27. maí - Inter vann meistaradeild Evrópu með 1-0 sigri á Benfica.
  • 29. maí - 274 fórust í námuslysi í Dhanbad á Indlandi.
  • 29. maí - Stærsta olíuvinnslusvæði Rússlands, Samotlor-olíuvinnslusvæðið, var uppgötvað.

Júní

Thumb
Ed White fer fyrstur Bandaríkjamanna í geimgöngu.

Júlí

Thumb
Myndavél með flasskubb.

Ágúst

Thumb
Bandarísku geimfararnir Pete Conrad og Gordon Cooper eftir vel heppnaða lendingu í Atlantshafi 29. ágúst.
  • 4. ágúst - Cooks-eyjar lýstu yfir sjálfstæði í frjálsu sambandi við Nýja-Sjáland.
  • 5. ágúst - Stríð Indlands og Pakistans vegna landamæradeilna hófst og stóð til 23. september.
  • 6. ágúst - Lyndon B. Johnson undirritaði lög sem afnámu ýmsar hindranir gegn kosningaþátttöku svartra Bandaríkjamanna.
  • 9. ágúst - Singapúr klofnaði frá Malasíu og lýsti yfir sjálfstæði.
  • 11. ágúst - Watts-uppþotin hófust í Los Angeles þar sem 34 létu lífið næstu daga.
  • 15. ágúst - Bítlarnir hófu sína aðra tónleikaferð um Bandaríkin með tónleikum fyrir 55.000 manns í Shea Stadium í New York-borg.
  • 17. ágúst - Sukarno forseti Indónesíu tilkynnti um útgöngu landins úr Heimsbankanum um leið og hann fordæmdi Víetnamstríðið.
  • 18. ágúst - Víetnamstríðið: Bandaríkjaher hóf landhernað með Starlite-aðgerðinni gegn vígi Víet Kong-liða á Van Tuong-skaga.
  • 19. ágúst - Auschwitz-réttarhöldunum í Frankfurt lauk með lífstíðardómum yfir 66 fyrrum SS-liðum.
  • 21. ágúst:
    • NASA sendi mannaða geimfarið Gemini 5 í vikulanga geimferð með tvo menn um borð.
    • Hötorgsuppþotin í Svíþjóð hófust með slagsmálum Mods-ungmenna við lögreglu.
  • 24. ágúst:
    • Ted Nelson notaði fyrstur orðið hypertext (stiklutexti) í fyrirlestri í Pittsburgh.
    • KGB hóf handtökur á úkraínskum mennta- og listamönnum fyrir „þjóðernisstefnu“.
  • 28. ágúst - Bandaríska skyndibitakeðjan Subway var stofnuð í Bridgeport, Connecticut.
  • 30. ágúst - Snjóflóð féll á stíflu sem verið var að reisa í Saas-Fee í Sviss með þeim afleiðingum að 90 verkamenn fórust.
  • 31. ágúst - Bandaríkjaforseti undirritaði lög um fangavist og sektir við því að brenna herkvaðningarbréf.

September

Thumb
Biskupar á fundi annars Vatíkansráðsins.

Október

Thumb
Vínlandskortið, sem reyndist síðar vera fölsun frá fyrri hluta 20. aldar.
  • 1. október:
    • Meðlimir 30. september-hreyfingarinnar í Indónesíu myrtu sex herforingja. Þetta varð upphafið að fjöldamorðum á allt að 1 milljón meðlimum kommúnistaflokksins næstu mánuði.
    • Sala á mellanöli með allt að 4,5% áfengisinnihald (miðað við ummál) var leyfð í matvöruverslunum í Svíþjóð.
  • 3. október:
    • KR vann sinn 19. íslandsmeistaratitil í knattspyrnu karla þegar að vann ÍA í úrslitaleik um titilinn.
    • Lyndon B. Johnson Bandaríkjaforseti undirritaði bandarísku innflytjendalögin 1965 þar sem upprunakvótar voru afnumdir.
  • 4. október:
  • 6. október - Heiðarmorðin: Ian Brady og Myra Hindley myrtu síðasta fórnarlamb sitt í Manchester.
  • 8. október - Samningaviðræður um framtíð Ródesíu í London runnu út í sandinn.
  • 12. október - Vínlandskortið, meint landakort frá 15. öld sem sýnir strönd Ameríku fyrir landafundi Kólumbusar, var sýnt opinberlega við Yale-háskóla.
  • 18. október - Kommúnistaflokkur Indónesíu var bannaður.
  • 22. október - Fyrsta Nóatúnsverslunin tók til starfa í Reykjavík.
  • 26. október:
    • Umferð var hleypt á nýja steypta/malbikaða Reykjanesbraut milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur. Vegtollur var innheimtur í tollskýli í Straumsvík þar til lán vegna veglagningarinnar var greitt upp 1972.
    • Sylvia Likens var pyntuð til bana af fóstru sinni, Gertrude Baniszewski, börnum hennar og vinum þeirra.
    • Bítlarnir voru fyrsta popphljómsveitin sem kom í Buckingham-höll þegar þeir tóku við MBE-orðum.

Nóvember

Thumb
Walt Disney, W. Haydon Burns fylkisstjóri og Roy O. Disney á blaðamannafundi 15. nóvember.

Desember

Thumb
Ferdinand Marcos tekur við embætti forseta Filippseyja.

Ódagsettir atburðir

  • Tókýó varð fjölmennasta borg heims þegar hún tók fram úr New York-borg með 15 milljón íbúa.
  • Tónlistarútgáfan Íslenzkir tónar var lögð niður.
  • Hljómsveitin Dátar var stofnuð.
  • Kúbverjar hófu að flýja til Bandaríkjanna í stórum stíl.
Remove ads

Fædd

Remove ads

Dáin

Nóbelsverðlaunin

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads