Alþingi gegn Geir H. Haarde

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Alþingi gegn Geir Hilmari Haarde (Landsd. 3/2012.) var fyrsta og eina málið sem rekið hefur verið fyrir Landsdómi á Íslandi. Málið var höfðað með ályktun Alþingis 28. september 2010 og formlegri ákæru saksóknara Alþingis 10. maí 2011. Í ákæru var Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra Íslands, gefið að sök að hafa með refsiverðum hætti sýnt af sér vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins um haustið 2008. Landsdómur hafði aðsetur í Þjóðmenningarhúsinu og þar fór aðalmeðferð málsins fram 5. til 16. mars 2012. Dómur féll í málinu 23. apríl 2012 með sakfellingu í þeim ákærulið sem sneri að stjórnarskrárbundinni skyldu forsætisráðherra til þess að halda ríkisstjórnarfundi um mikilvæg málefni en sýknu að öðru leyti. Geir var ekki gerð sérstök refsing í málinu.

Geir áfrýjaði dómnum til Mannréttindadómstóls Evrópu og hélt því fram að málssóknin gegn honum hefði verið pólitísks eðlis. Mannréttindadómstóllinn dæmdi gegn Geir árið 2017 og úrskurðaði að íslenska ríkið hefði ekki gerst brotlegt gegn honum með ákæru sinni.[1]

Remove ads

Tengt efni

Tenglar

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads