Bláklukka

From Wikipedia, the free encyclopedia

Bláklukka
Remove ads

EsterBláklukka (fræðiheiti: Campanula rotundifolia) blóm af bláklukkuætt. Bláklukkan hefur 1 til 2 blóm á hverjum stöngli en stundum þó fleiri. Blóm þessi eru, eins og nafnið gefur til kynna, blá og klukkulaga. Einstaka plöntur geta þó verið með hvít blóm. Stöngull jurtarinnar er blöðóttur og jarðlæg blöðin hjartlaga eða með kringlótta blöðku.

Thumb
Lýsing
Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun, Tvínefni ...

Hún vex í Evrópu og Síberíu frá norðurhluta Miðjarðarhafssvæðisins til Norðurheimskautssvæðisisns

Bláklukka vex í móajarðvegi, brekkum og grasbölum. Á Íslandi er útbreiðslan aðallega á austurlandi, en hefur breiðst út meðal annars með skógarplöntum frá Hallormsstað.

Remove ads

Flokkun

Campanula rotundifolia var fyrst lýst 1753 af Carl Linnaeus. Frá og með nóvember 2019 eru engin afbrigði eða undirtegundir af Campanula rotundifolia viðurkennd í Plants of the World Online.[1] Nokkrar tegundir hafa fyrrum verið taldar sem afbrigði eða undirtegundir af C. rotundifolia:

  • Campanula alaskana (Campanula rotundifolia var. alaskana or hirsuta)
  • Campanula giesekiana (C. r. var. dubia eða var. groenlandica)
  • Campanula intercedens (C. r. var. dentata eða intercedens)
  • Campanula kladniana (C. r. subsp. kladniana)
  • Campanula macrorhiza (C. r. var. aitanica eða alcoiana)
  • Campanula moravica (C. r. subsp. moravica)
  • Campanula nejceffii (C. r. var. bulgarica)
  • Campanula petiolata (C. r. var. petiolata)
  • Campanula ruscinonensis (C. r. var. ruscinonensis)
  • Campanula willkommii (C. r. subsp. willkommii)
Remove ads

Ytri tenglar

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads