Belgjastör
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Belgjastör (fræðiheiti: Carex panicea) er stör sem á heimkynni sín víða í Norður- og Vestur-Evrópu. Jarðstöngull belgjastarar er með renglum. Stráið er grannt og blöðin flöt og styttri en stráið sjálft. Litur þeirra er grágrænn. Meðal einkenna belgjastarar er að stoðblöð kvenaxanna eru með löngu slíðri og axhlífarnar eru mósvartar. Belgjastör vex í mýrum um allt Ísland, þó ekki á Miðhálendinu.[1] Belgjastör líkist slíðrastör allmikið en slíðrastörin vex þó aðallega í þurrlendi.[2]
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads